Fyrirlestur um eitthvað fallegt - Stikla

preview_player
Показать описание
Fyrirlestur um eitthvað fallegt er gamanverk um kvíða eftir leikhópinn SmartíLab.

Verkið er sýnt í Tjarnarbíó í apríl og maí 2017.

Baldur stígur á svið og er að hefja fyrirlestur um nýjasta listaverk sitt. Hann finnur að eitthvað er ekki eins og það á að vera... hann frýs. Hann er að fá sitt fyrsta kvíðakast. Hann kíkir inn í heilann sinn og sér þá hvar stjórnstöðin er að bila.

Við kynnumst Baldri – ótta hans, þrálátum hugsunum og leit hans að lausn. Við kynnumst líka öllum hinum Böldrunum, því kvíði býr í okkur öllum. Birtingarmyndir kvíða geta verið ótalmargar og upplifun hvers og eins er sérstök. Fimm leikarar túlka mörg andlit kvíðans, í sjónrænu, gamansömu leikverki.

Í verkinu verður kvíðinn skoðaður frá ýmsum sjónarhornum og kafað í tilfinningar, hugsanir, magaverki, tölvuleiki, geðlyf, svefntruflanir, sjálfsþekkingu, sigra, bata, hugarangur og sálarfrið. Og ofurhetjukvíðamaðurinn kemur að sjálfsögðu við sögu.

Rannsóknir sýna að á hverju ári þjáist um 12% Íslendinga af óeðlilegum eða sjúklegum kvíða. Leikverkið fjallar á glettinn hátt um þetta erfiða málefni, með það að markmiði að vekja fólk til meðvitundar og opna umræðuna um geðheilbrigði á Íslandi enn frekar.

Höfundur: SmartíLab-hópurinn
Leikstjórn: Sara Martí
Framkvæmdastjórn: Martin L. Sörensen
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson
Leikarar: Agnes Wild, Guðmundur Felixson, Hannes Óli Ágústsson, Kjartan Darri Kristjánsson, Sigrún Huld Skúladóttir
Hljóðmynd og myndbönd: SmartíLab-hópurinn
Frumsamið lag: Hannes Óli Ágústsson
Grafísk hönnun og umbrot: Martin L. Sörensen
Ljósmyndir: Ásgeir Ásgeirsson
Рекомендации по теме
visit shbcf.ru