filmov
tv
Hundrað óhöpp Hemingways - Flugslys

Показать описание
Svo virðist sem þeim sé mest umhugað um heppnina sem minnst af henni fá. Það á allavega við um bandaríska rithöfundinn Ernest Hemingway. Þegar hann staulaðist út úr bíl við sjúkrahúsið í borginni Entebbe í Úganda þann 25. janúar 1954 höfuðkúpubrotinn, slasaður á hendi og fæti og með töluverð brunasár eftir að hafa lent í tveimur flugslysum á tveimur dögum, ávarpaði hann aðvífandi blaðamenn með orðunum: ,,My luck still holds“, eða „Ég hangi enn á heppninni.“
Glæpasagnadrottningin Lilja Sigurðardóttir fetar hér nýjar slóðir og leiðir hlustendur í gegnum ævi rithöfundarins Ernests Hemingways, allt frá æsku hans sem lítil stúlka, til harmrænna endaloka. Örn Árnason túlkar Hemingway af sinni alkunnu snilld, og á leiðinni er staldrað við fjölmörg ævintýraleg óhöpp, og ýmsar persónur sem spiluðu hlutverk á þessari undarlegu ævi mæta til leiks. Hér er komin tíu þátta sería, sú fyrsta sinnar tegundar á Storytel.