Jeppaferð með félögum úr Íslandrover klúbbnum í Bása í Goðalandi.

preview_player
Показать описание
Það var lagt snemma í hann í gærmorgun þegar heil hersing af Land Rover eigendum lagði af stað frá Olís við Rauðavatn en klukkan á slaginu níu fór strollan af stað um 25 bílar. Leiðin lá í Bása uppí Þórsmörk.

Veðrið var nú ekkert að þvælast fyrir hópnum en það ringdi á köflum eins og sagt er uns það ringdi stanslaust. Land Rover eigendur láta slíka smámuni sem veður hafa áhrif á sín plön og var stíft ekið og fyrsti stans var Hvolsvöllur. Athygli vakti að ökumenn og farþegar voru margir hverjir uppáklæddir í íslenskan þjóðlegan fatnað. Lopapeysan var þema ferðar en flottir sixpensarar settu einnig svip sinn á samkunduna.
Рекомендации по теме
visit shbcf.ru