Desemberkveðja - Sigríður Thorlacius & Sigurður Guðmundsson

preview_player
Показать описание
Myndband við lagið Desemberkveðja með Sigurði Guðmundssyni og Sigríði Thorlacius.

Söngur: Sigríður Thorlacius & Sigurður Guðmundsson
Lag: Sigurður Guðmundsson
Texti: Bragi Valdimar Skúlason
Píanó og orgel: Sigurður Guðmundsson
Bassi og gítar: Guðmundur Óskar Guðmundsson
Gítar: Örn Eldjárn
Trommur og slagverk: Þorvaldur Þór Þorvaldsson
Kór: Aron Steinn Ásbjarnarson, Fjóla Kristín Nikulásdóttir, Jóhanna Ósk Valsdóttir, Kirstín Erna Blöndal, Svanfríður Hlín Gunnarsdóttir, Þorkell Helgi Sigfússon, Örn Ýmir Arason & Örn Eldjárn
Upptökustjórn: Friðjón Jónsson
Hljóðblöndun og hljómjöfnun: Sigurður Guðmundsson

Aðstoð við myndband: Jorri Kristjánsson

DESEMBERKVEÐJA

Með heiðríkju í huga mér
ég heilsa upp á desember.
Uppáhellt í heitri krús
við heiminn er ég nokkuð dús.
Borðið allt að því autt
allt svo viðburðasnautt
— stund til staldra við.
Hugur hvarflar svo vítt
hjarnið sindrandi hvítt
— öll svartsýni sett á bið.

Þá fellur á mig föl af snjó
ég fyllist tregablandinni ró.
Og lífið er gott — eina ljúfsára stund
en það er líklega tímabundið.

Ég sendi þér dálitla
desemberkveðju.
Já, dulitla, dáfagra
desemberkveðju.
Frá mér, hún flýgur til þín.

Næturmyrkrið mesta dvín,
Ég myndast við að ná til þín.
Dagrenningin ölvuð er
og einsemdin svo bölvuð hér.
Því sannleikurinn er sá
að ég sakna þín smá
— og mest svonað morgni til.
Síðan sækir mig á
svoldil fortíðarþrá
— hún hryggir mig, hér um bil.

Við dagsbrúnina brakar snjór
— bara að ég ætti einn bjór.
Og tilveruna, til tilbreytingar
töluvert betur ég skil.

Ég sendi þér dálitla
desemberkveðju.
Já, dulitla, dáfagra
desemberkveðju.
Frá mér, hún flýgur til þín — frá mér til þín.

Ég færi þér dálitla
desemberkveðju.
Dísæta, dýrðlega
desemberkveðju.
— frá mér, hún flögrar til þín — frá mér til þín.
Рекомендации по теме
visit shbcf.ru