Íslensku hljóðbókaverðlaunin Storytel Awards 2023

preview_player
Показать описание

Hugleikur Dagsson var kynnir kvöldsins. Örn Árnason steig á stokk í hlutverki Afa og setti hátíðina með léttum og skemmtilegum hætti auk þess sem leikarinn Mikael Emil Kaaber tók kraftmikla lagið Einn úr rokksöngleiknum Trölladans sem var sérstaklega skrifaður fyrir Storytel.

Verð­laun voru veitt í sex flokkum auk sérstakra heiðursverðlauna. Heiðurs­verð­laun hlaut leikkonan Helga Elínborg Jónsdóttir fyrir ómetanlegt framlag til íslenskrar talsetningar og hljóðbóka. Helga er ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar og hefur undanfarin ár lesið fjölda íslenskra hljóðbóka. Nú síðast las hún bókina Sálarhlekkir sem er ein vinsælasta bók ársins 2023 hjá Storytel.

Verðlaunahafar voru eftirtaldir:

Besta barna- og ungmennabókin:
Litla hafmeyjan
Höfundur: Anna Bergljót Thorarensen
Lestur: Leikhópurinn Lotta

Besta glæpasagan
Þú sérð mig ekki
Höfundur: Eva Rún Ægisdóttir
Lestur:Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Haraldur Ari Stefánsson, María Dögg Nelsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir og Þórey Birgisdóttir.

Besta skáldagan
Konan hans Sverris
Höfundur: Valgerður Ólafsdóttir
Lestur: Margrét Örnólfsdóttir

Besta ósk­áldaða efnið
Veran í moldinni
Höfundur: Lára Kristín Pedersen
Lestur: Þuríður Blær Jóhanns­dóttir

Besti ljúflesturinn
Litla bakaríið við Strandgötu
Höfundur: Jenny Colgan
Lestur: Esther Talía Casey

Besta hljóðserían
Hundrað óhöpp Hemingways
Höfundur: Lilja Sigurðardóttur
Lestur: Lilja Sigurðardóttir, Örn Árnason og fleiri leikraddir.
Рекомендации по теме
join shbcf.ru