filmov
tv
Vaxtarsamningur Suðurnesja // Einar Friðrik Brynjarsson

Показать описание
GrasPro
Einar Friðrik Brynjarsson
Verkefnið heitir GrasPro og snýst það um skráningarþætti tengdu grasi og íþróttavöllum. Einar Friðrik Brynjarsson leiðir verkefnið.
„Það var mikil vinna búin að eiga sér stað áður en sótt var um styrk til Vaxtarsamnings Suðurnesja. Við vorum komnir að ákveðnum tímapunkti í verkefninu og höfðum verið í hægagangi í ákveðinn tíma og það var orðið ljóst að við þurftum að fá fjármagn og aðstoð í verkefnið. Við vorum búnir með mikinn hluta af því sem við gátum gert sjálfir. Þá var ekkert annað að gera en að fara út af örkinni og afla fjármagns," segir Einar Friðrik þegar hann er spurður um hvers vegna hann hafi leitað til Vaxtarsamnings Suðurnesja.
„Það er svolítið erfitt að setja sér markmið þegar maður er að búa til eitthvað nýtt, því það er ekkert að miða við. Það er með mig að ég vil oft keyra hlutina óraunhæft áfram. Það hefur gengið nokkuð vel, þó svo ég vilji alltaf ná betri árangri og að hlutirnir gangi hraðar. Þetta verkefni hefur gengið fínt en er aðeins á eftir mínum björtustu væntingum," segir Einar Friðrik.
Hann segir stöðu verkefnisins í dag vera að það séu bjartir tímar framundan og það sé ekki síst því að þakka að GrasPro fékk þetta fjármagn frá Vaxtarsamningi Suðurnesja. „Og að við gátum keyrt verkefnið af stað aftur og það er komið á nokkuð góðan stað núna. Það verður góður kraftur í verkefninu strax á næsta ári þannig að það eru bjartir tímar framundan," segir Einar Friðrik Brynjarsson í viðtali.