Simbi - Barnadansar - Lion King Nemendasýning 2015

preview_player
Показать описание
Nemendasýning Dansstúdíó World Class, 25. mars 2015.
Yfir 500 dansarar sýndu Commerical dansa, Jazz, Nútímadans, Samtímadans, Kóreógrafíu og fleira.

Sýningin var byggð á ævintýri Simba í Lion King og fór Björn Bragi Arnarson með kynningar. Textinn sem hann flutti var saminn af Stellu Rósenkranz, deildarstjóra skólans, en hún var listrænn stjórnandi sýningarinnar. Friðrik Dór Jónsson kom svo áhorfendum sannarlega á óvart í lok sýningar þar sem hann söng lag sitt Nóttin Svört og hið góðkunna Eurovision lag, Í Síðasta Skipti, við mikil fagnaðarlæti. Nemendur deildu sviðinu með honum og þökkuðu fyrir sig með hneigingu og lófaklappi.

Fjölbreyttir dansstílar dansaðir af hæfileikaríkum dönsurum á öllum aldri. Dansstúdíó World Class er annar stærsti dansskólinn á höfuðborgarsvæðinu. Framsækið og metnaðarfullt dansnám!
Рекомендации по теме
visit shbcf.ru