Gömul sögn - Jólalag Söngfjelagsins 2020

preview_player
Показать описание
Lag/song: Gömul sögn

SÖNGFJELAGIÐ
JÓLALAG 2020
Stjórnandi: Hilmar Örn Agnarsson

Lag og texti / Song and lyrics: Hjörleifur Hjartarson
Útsetning fyrir hljómsveit / Instrumental arrangement: Ásgeir Ásgeirsson
Útsetning fyrir kór/Choir arrangement: Einar Jónsson
Flytjendur/Performers:
Söngfjelagið (kór/choir)
Skuggamyndir frá Býsans (hljómsveit/band)
Rumyana Filkova (yfirrödd/descant)
Stjórnandi/Leader: Hilmar Örn Agnarsson
Myndband/Video: Logi Hilmarsson (drónatökur/drone shooting: Hjálmtýr Guðmundsson)

Texti/lyric:

Gömul sögn
Er dvelur jörð í dimmum vetrarskugga
og djúpri þögn.
þá gegnum hugann gengur tíðum aftur
ein gömul sögn,
um lítið barn sem borið var í heiminn
um blakka nótt
og móður þess sem lágt í lambhúskofa
tók léttasótt.

En þessi saga er sögð var fyrir löngu
og sögð er enn
hún fjallar á sinn undarlega máta
um alla menn.
Hún geymir þúsund ára veikar vonir
um vörn og hlíf
og bæn til handa börnum allra tíma
um betra líf.

Hún gerist endurtekið allar nætur
um allan heim.
Það fæðast börn, og fyrirheit og vonir
æ fylgja þeim.
Er tilgangslaust menn takast á og stríða
um trú og sið.
Hvert lítið barn mun boða mikinn fögnuð
og bæn um frið.
Рекомендации по теме
Комментарии
Автор

Þetta er svo dásamlega fallegt að ég er orðlaus....TAKK

annamargretstefansdottir
visit shbcf.ru