Tanngreiningar - Börn eru ekki farangur

preview_player
Показать описание
Börn sem telja sig vera eða eru talin flóttamenn eiga rétt á vernd og stuðningi hvort sem þau eru ein eða í fylgd foreldra eða annarra. Svo segir Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna sem lögfestur hefur verið hér á landi. Til þess að brjóta þessi lög án afleiðinga notast Útlendingastofnun við svokallaðar tanngreiningar.

Tanngreiningar eru rannsóknir á þroska endajaxla til að segja til um hvort tiltekið ungmenni sé eldra eða yngra en 18 ára. Þeim hefur verið lýst sem óáreiðanlegum og siðferðislega röngum af mörgum samtökum, þar á meðal Doctors of the World, Læknafélag Þýskalands og Tannlæknafélag Bretlands (BDA).

Það er talin almenn siðaregla í heilbrigðisgreinum að láta sjúklinga ekki undirgangast aðgerðir sem geta verið þeim skaðlegar að ástæðulausu. Geislun úr röntgenmyndatökum getur haft skaðleg áhrif á líkamsvefi og því er ávallt miðað við að engin röntgenrannsókn sé gerð nema læknir hafi metið hana nauðsynlega.

Í ofanálag eru rannsóknirnar ónákvæmar. Við Háskóla Íslands hafa vísindamenn haldið því fram að skekkjumörk geta verið samtals tæp þrjú ár og við Háskólana í Uppsölum var gert ráð fyrr að árin 2014-2015 hafi hátt í 30% niðurstaðna aldursgreininga í Svíþjóð (sem byggja á tanngreiningum og hnjáliðaþroska) hafi verið rangar og aldur metinn of hár.

Útkoma rannsóknanna hefur afgerandi afdrif ungra hælisleitenda sem sækja um vernd hérlendis. Dæmi Útlendingastofnum viðkomandi sem 18 ára, missir sá eða sú öll réttindi sín sem barn.

Fyrr á þessu ári tókst Stúdentaráði að standa vörð um vísindaleg og siðferðisleg heilindi Háskólans með því að þrýsta á stjórnendur um að stöðva framkvæmdir á tanngreiningum innan skólans. Það var stórt skref fyrir HÍ sem vísindastofnun en gleðin var skammvinn fyrir íslenskt samfélag því stuttu síðar auglýsti Útlendingastofnun eftir nýjum samstarfsaðilum til að taka við tanngreiningunum.

Við fordæmum framkvæmd tanngreininga á Íslandi með öllu. Við teljum það ekki við hæfi að aldursgreiningar verði gerðar á börnum á flótta þar sem þær teljast óvísindalegar og óáreiðanlegar.

Við teljum það siðferðislega rangt að líkamar barna á flótta séu látnir verða fyrir skaðlegri geislun án þess að læknir meti það nauðsynlegt.

Við segjum nei við stefnu stjórnvalda að vísa börnum á flótta úr landi. Við teljum það aldrei réttlátt að vísa börnum út í óvissuna og fordæmum kerfisbundið ofbeldi af hálfu yfirvalda.

Við krefjumst þess að íslenska þjóðin muni fylgja Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið festur í lög. Okkur ber lagaleg skylda til að veita þessum viðkvæmasta hópi samfélagsins vernd.

Skrifið undir:

Leikarar: Benedikt Erlingsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Kjartan Milíaní Dahmane Sallé

Leikstjóri: Gaukur Úlfarsson
Handrit: Benedikt Erlingsson, Gaukur Úlfarsson, Esther Þorvalds,
Framleiðendur: Áslaug Eva Björnsdóttir, Esther Þorvalds og Benedikt Erlingsson og Guðmundur Karl Karlsson
Kvikmyndataka: Atli Þór Einarsson
Hljóð: Bogi Reynisson
Búningaval: Helga Stefánsdóttir
Búningar á setti: Rebekka Jónsdóttir
Tæknimenn: Ninna Pálmadóttir og Hilke Roennfeldt
Runner: Guðmundur Karl Karlsson
Smink: Alexandra Marin
Veitingar: Emilie Zmaher (Emilie’s Reykjavik)
Ljós: Oddur Elíason
Klipping: Pétur Már Pétursson og Esther Þorvalds
Lögfræðingar : Matthías Freyr Matthíasson, Elín Árnadóttir og Magnús D. Norðdahl
Aðstoð pre-production: Anna Sæunn Ólafsdóttir
Brellur: Helgi Laxdal
Hljóðblöndun: Nicolas Liebing
Grafík: Esther Þorvalds
Tónlist: Hrafnkell Örn Guðjónsson eftir lagi Magnúsar Þórs Sigmundsson
Hönnun lógós RBÁF: Ninna Þórarinsdóttir
Textaþýðingar: Anna Andersen og Esther Þorvalds

Þakkir: Emelie and the Cool Kids, Reitir, Domino's Pizza, KUKL, Reykjavik Photo og Jón Gnarr
Рекомендации по теме
welcome to shbcf.ru