World Class Strandgata

preview_player
Показать описание
Strandgata 14, 600 Akureyri

Stöðvarstjóri: Guðrún Gísladóttir

Sími: 461 4444

World Class við Strandgötu á Akureyri er ein stærsta líkamsræktarstöðin á landsbyggðinni og glæsileg í alla staði. Húsið er byggt út í sjó og er útsýnið því mikið og fallegt. Það er 1500fm að stærð og öllum þægindum búið. Mikið var lagt upp úr hönnun hússins og var innanhússhönnun í höndum þeirra Fanneyjar Hauksdóttur og Margrétar Jónsdóttur.

Tækjasalurinn er rúmgóður og bjartur. Útsýni úr salnum er stórfenglegt, vaðlaheiðin blasir við og Eyjafjörðurinn í allri sinni dýrð. Öll líkamsræktar- og upphitunartæki eru af nýjustu gerð frá Life Fitness og góður teygjusalur er á efri hæð hússins.

Þolfimitímar eru alla daga, tímar fyrir vinnu/skóla, morguntímar, hádegistímar og mikið úrval tíma alla seinniparta ásamt flottum tímum um helgar.

Búningsklefar eru rúmgóðir. Góð snyrtiaðstaða er og skápar stórir og þæginlegir. Hægt er að kaupa lása í afgreiðslu Átaks. Í búningsklefum er vatnsgufubað og góðar sturtur. Úr búningsklefum er síðan gengið upp á þak hússins til að komast í heitan pott, þar sem glæsilegt útsýni er í allar áttir.

Heiti potturinn hefur vakið mikla lukku og er mikið notaður af viðskiptavinum okkar. Gott er að hvíla lúin bein og liðka vöðvana að æfingu lokinni. Potturinn er einnig mikið notaður af hópum sem koma til æfinga og/eða í Aqua Spa, nudd- og snyrtistofu okkar.
Рекомендации по теме