filmov
tv
Pilot whales in Iceland - Fjörugir grindhvalir í Hestfirði

Показать описание
Stór grindhvalavaða sást í botni Hestfjarðar í Ísafjarðardjúpi í dag. Þegar Jóhannes Jónsson, myndatökumaður RÚV, var þar á ferð var mikið fjör í hópnum þar sem hvalirnir léku sér hvor við annan, stungu sér í sjóinn og virtust una sér hið besta.
Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun segir óvenjulegt að grindhvalir fari svona norðarlega, en mögulega geti það tengst hlýnandi sjó. Grindhvalurinn sé hins vegar í eðli sínu félagsleg tegund sem ferðast um í stórum hópum. Þessi grindhvalir falla sannarlega í þann hóp.
Í myndskeiðinu hér að ofan má berja hvalina augum við undirleik lagsins Flight from the City eftir Jóhann Jóhannsson, af plötunni Orphée frá árinu 2016.