filmov
tv
Amnesty International - Ferðin

Показать описание
Allir hafa kynlífs- og frjósemisréttindi. Ríkisstjórnum er skylt að tryggja að allir geti notið þessara réttinda án ótta, þvingana eða mismununar.
Þú hefur rétt til að:
Taka ákvarðanir er varða þína heilsu
Biðja um og fá upplýsingar um heilbrigðisþjónustu
Ákveða hvort og hvenær þú eignast börn
Ákveða hvort þú gengur í hjónaband
Njóta aðgengis að getnaðarvörnum; löglegum fóstureyðingum ef um er að ræða nauðgun, sifjaspell eða ógn við líf eða heilsu; og mæðravernd ásamt ýmissi annarri heilbrigðisþjónustu
Lifa án ótta við nauðgun og annað ofbeldi
Það eru grundvallarmannréttindi að mega taka eigin ákvarðanir um líkama og líf. En milljónir sæta því á hverjum degi að brotið sé á þessum réttindum. Þess vegna hóf Amnesty International herferðina Minn líkami, mín réttindi, sem beinir sjónum að kynlífs- og frjósemisréttindum okkar.
Ungt fólk í heiminum er um 1,8 milljarðar. Margt af því skortir aðgengi að upplýsingum, kynfræðslu og heilbrigðisþjónustu er varðar kynlífs- og frjósemisréttindi til að það geti notið öryggis og heilbrigðis. Afleiðingarnar eru hræðilegar. Nærri 3.000 ungt fólk smitast af HIV-veirunni á hverjum degi en einungis 34% ungs fólks í þróunarríkjum geta svarað fimm grundvallarspurningum um HIV og hvernig hægt er að koma í veg fyrir smit.
Takmarkanir er varða kynlífs- og frjósemisréttindi koma meira niður á konum og stúlkum. Ungar konur og táningsstelpur úr hópum sem eiga undir högg að sækja finna mest fyrir takmörkunum vegna mismununar gagnvart þeim. Þær eiga erfiðast með að sækja sér upplýsingar og þjónustu varðandi kynlífs- og frjósemisheilsu.
Veikindi á meðgöngu eru helsta dánarorsök unglingsstúlkna á aldrinum 15 til 19 ára í þróunarríkjum.
Allir eiga rétt á aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu, ráðgjöf, upplýsingum og fræðslu er varðar kynlífs- og frjósemisréttindi. Ef lög, stefnumótun og aðrar hindranir koma í veg fyrir slíkt verður að ryðja þeim úr vegi.