filmov
tv
Pólskar jólahefðir með Jakub Ziemann | Menningarhúsin í Kópavogi

Показать описание
Í 18/12 glugga jóladagatals Menningarhúsanna er boðið upp á kynningu á pólskum jólahefðum.
Í Póllandi er aðfangadagskvöld heilagasti dagur jólahátíðarinnar en þá hittast fjölskyldur alla jafna og fagna jólunum saman. Í hefðbundnum pólsku jólaboði má finna tólf rétti sem tákna lærisveinana tólf eða tólf mánuði ársins.
Jakub Ziemann, kokkur á veitingastaðnum Skál, segir hér frá pólskum jólamat svo sem pierogi, barszcz og kompot og hvetur alla til að prófa enda er pólskur jólamatur afar aðgengilegur, ódýr og einfaldur.
Hér fyrir neðan fylgir svo uppskrift að hefðbundna jóladrykknum Kompot.
Kompot z suszonych owoców - Kompot með þurrkuðum ávöxtum (uppskriftin gerir 1 lítra af jólalegum hátíðardrykk)
Hráefni: 1 líter vatn - 2 tsk sykur - 250 gr þurrkaðir ávextir (epli, plómur, perur, trönuber). Hægt að blanda sjálf en blandan fæst tilbúin í búðum pólskri matvöru, merkt Kompot.
Valkvæð hráefni: -Anís - negulnaglta - appelsínubörkur - sítrónsafi - kanilstöng - eplasneiðar
Setjið þurrkuðu ávextina í stóran pott og látið liggja í vatni í klukkustund. Setjið anís, negulnagla og kanilstöngina ofan í blönduna hér.
Látið blönduna malla á lágum hita í 10 mínútur. Bætið við sykri.
Bragðbætið með sítrónusafa og meiri sykri ef þörf er á.