filmov
tv
FRÉTT // Stóraukin afköst og hagkvæmni í þvottahúsi Landspítala

Показать описание
Þvottahús Landspítala endurnýjaði vélakost sinn undir lok ársins 2018 og tók þrjár stórar samstæður í notkun. Aðdragandinn var liðlega eitt ár að öllu samanlögðu og uppsetningin gekk mjög vel. Rekstraröryggi þvottahússins hefur með breytingunum aukist til muna og afköstin stóraukist, ásamt því sem vinnuvernd starfsfólks er fyrsta flokks. Hagræðingin við vinnu er einnig umtalsverð.
MIKIL AFKASTAGETA
Karólína Guðmundsdóttir deildarstjóri hjá rekstrarsviði segir hér frá þessu merkilega verkefni. Um aldamótin var þvottahúsið að þvo um 280 kíló af sængum og koddum á mánuði, sambærileg tala í dag er um 25 tonn, samkvæmt Magnúsi V. Friðbergssyni verkefnastjóra hjá rekstrarsviði. Gísli J. Sigurðsson rekstrarstjóri þvottahússins kveður dagsverk þvottahússins jafnast á við afkastagetu 1100-1200 heimilisþvottavéla.
SÆNGURVERALAUSAR SÆNGUR
Þess má geta að helsta ástæðan fyrir fjárfestingunni var það umbótaverkefni hjá Landspítala að innleiða sængurveralausar í starfseminni. Það var meðal annars bylting í sýkingarvörnum og öryggi sjúklinga. Sængurnar eru jafnframt léttar, hlýjar og anda vel. Þær draga að auki stórlega úr álagi á axlir starfsfólks, ásamt því að vera vinnusparandi þar sem handtökum við að búa um rúm fækkar til muna.