filmov
tv
Sigurvegarar framhaldsskóla 2021 - Ungt umhverfisfréttafólk

Показать описание
Hvaða ungmenni eru umhverfisfréttafólk ársins 2021?
Landvernd stendur fyrir keppninni Ungt umhverfisfréttafólk en þar gefst nemendum tækifæri til að láta rödd sína heyrast. Þau læra um umhverfismál, falsfréttir og fjölbreyttar miðlunar leiðir efnis.
Á tímum loftlagskvíða og falsfrétta valdeflum við ungt fólk og færum þeim tækifæri og tól til að hafa áhrif. Nemendur flytja fréttir um umhverfismál á fjölbreyttan máta og eru valin framlög send í innlenda og alþjóðlega keppni.
Sjáðu sigurverkefni Ungt umhverfisfréttafólk, viðtöl við sigurvegara og umsagnir dómnefndarinnar hér!
Í fyrsta sæti var Íris Lilja Jóhannsdóttir með ljósmyndina Sæt tortíming-Sweet destruction. Íris kemur frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Í öðru sæti voru þau Helga Laufey Rúnarsdóttir, Hjörtur Snær Halldórsson, Lingný Lára Lingþórsdóttir, Jóna Kristín Þórhallsdóttir, Sesselja Helgadóttir með vefsíðu um matarsóun. Þau koma frá Menntaskólanum að Laugarvatni.
Val unga fólksins hlutu Indíana Ásmundsdóttir, Katrín Ása Wongwan, Priyanka Dana Antao og Tinna Hilmarsdóttir við Fjölbrautaskólann við Ármúla.
.......
Verðlaunaafhendingin er hluti af verkefninu Ungt umhverfisfréttafólk sem er unnið í samstarfi við framhaldsskóla og grunnskóla á landinu. Það er rekið í 45 löndum víðsvegar um heiminn (Young reporters for the environment) og er vettvangur fyrir ungt fólk til að kynna sér umhverfismál með gagnrýnum hætti og miðla upplýsingum til almennings eftir fjölbreyttum leiðum.
Verkefnið veitir skólum tækifæri til þess að gefa umhverfismálunum aukið vægi í kennslu. Þeir fá faglega aðstoð kennara við að kynna sér umhverfismálin og mikil áhersla er lögð á að heimildir séu áreiðanlegar. Slíkt er nauðsynlegt á tímum falsfrétta.
Við hvetjum alla áhugasama til þess að horfa og kynnast því sem ungt fólk er að gera í umhverfismálum í dag.