filmov
tv
Ég er að vinna í mínum málum - Tvö dónaleg haust

Показать описание
Eftir 17 ára þögn sendir Tvö dónaleg haust frá sér nýtt lag af væntanlegri plötu Miðaldra. Á þessum 17 árum sem hafa liðið höfum við elst og þroskast eins og heimsbyggðin. MIðaldra fjallar um þá stöðu sem komin er upp í lífum okkar. Við erum orðnir miðaldra og heimurinn og kynjahlutverk hafa breyst. "Ég er að vinna í mínum málum fjallar um mann sem þarf að líta alvarlega í eigin barm ef hann á að fá það líf sem hann þekkir aftur. Hann er búinn að drulla upp á bak og þarf að taka sér tak.
Myndbandið var tekið upp að mestu í Vesturbænum í júní 2018. Tryggvi Már Gunnarsson túlkar aðalsöguhetjuna af næmni og kostgæfni. Við erum stoltir af því að hafa fengið Sigfríði Nieljohniusdóttur, 98 ára og eina lifandi 80 ára stúdent landsins til að leika ömmuna. Við erum líka stoltir af því að Katla Ómarsdóttir, dóttir Ómars Arnar básúnuleikara bandsins, leikur kaffiþjón og að Ernir Ómarsson bróðir hennar sá um að klippa myndbandið.
Höfundur lags, texta og leikstjóri myndbandsins er Guðmundur Ingi Þorvaldsson.