Mullá Husayn nálgast Shíráz (með skjátexta)

preview_player
Показать описание
Birtu slær á borg og múra
bjarmar dagtungl fölt við svið.
Einsamall með ugg í hjarta
ungur maður nálgast hlið,
á múrnum sem til austurs veit.
Allt er hljótt í þessum reit.
Á festing alskært auga lifir.
Ilman skrýðast lauf og rjóður.
Heilög mildi andar yfir
einfarinn sem staldrar hljóður.

Leitað hefur lengi og víða
að ljósi því er fegurst skín.
Þreytt er öndin
þjáð hans hjarta
þróttur sálar óðum dvín.
Hví bliknar svo hin bjarta mynd?
Hvar blánar skírust heimsins lind?
Yfir landsins ógnarsanda
eigra þeir sem hennar leita.
Leiddir stjörnu lausnaranda,
lostnir eldi fyrirheita.

Sæt er angan Shíráz rósa,
svipur hreinn á þeirra brá.
Björtum undir boga himins
braga eins vítt og augun sjá.
Og sköpunin er skrýdd í dag
skarti dýru um sólarlag.
Allt sem lifir andar gleði.
Yfir vakir gullin birta.
Sofa vært á sama beði
sviptign eik og vonblíð myrta.

Ó þú Dagur allra daga,
dulúð vígð er helgi þín.
Yfir þér um allar aldir
undursamleg fegurð skín.
Því aldahvörfin urðu hér
allt sem var, það hvarf með þér.
Er féll af jörð hin freðna gríma
og flæddi um veröld ljósið bjarta
og Alvaldur til eilífs tíma
eld sinn kveikti í heimsins hjarta.

Ljóðið er eftir Eðvarð Taylor Jónsson
Рекомендации по теме
join shbcf.ru