Fallegar eignir með sundlaug í Villamartin

preview_player
Показать описание
Spánarheimili kynnir: Kjarni af fallegum einbýlishúsum í Villamartin. Byrjun framkvæmda verður í ársbyrjun 2021 í Villamartin. Um er að ræða eignir á rúmlega 200fm lóð og eru húsin með 50fm kjallara. Stór 40fm stofa með eldhúsi og baðherbergi á jarðhæð og 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi á efri hæðinni plús 44fm stórt sólarþak. Möguleiki á að bæta við einu svefnherbergi á jarðhæð.

Nánari upplýsingar um allt kaupferlið á Spáni og fjármögnun ásamt aðgang að stærstu söluskránni;

Til upplýsinga;

Söluverðið er í evrum og umreiknað hér yfir í íslenskar krónur miðað við 1 evra = 155 kr. Einnig þarf kaupandi að greiða 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar svo og um 3-5% í áætlaðan stimpil- og umsýslukostnað. Samtals verður kaupandinn því að gera ráð fyrir að þurfa að greiða um 13-15% af kaupverði eignarinnar í opinberan kostnað. Spænskir bankar bjóða allt að 70% fasteignaveðlán með 3 - 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lántökukostnaði svo og stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.

Рекомендации по теме
join shbcf.ru