Páll Óskar í Höllinni 30. desember | Miðasala hefst 10.10 |10 sek.

preview_player
Показать описание
MIÐASALA HEFST 10.10 KL. 10:10.
FORSALA SENU LIVE FER FRAM 9. OKTÓBER KL. 10
SKRÁNING Á PÓSTLISTANN HÉR (HAKA VIÐ SENU LIVE)

Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að endurtaka risatónleikana laugardaginn 30. desember. Flottustu tónleikar Íslandssögunnar verða gerðir aftur, nákvæmlega eins og áður, þannig að allir fá nú annað tækifæri til að upplifa þennan einstaka viðburð sem á sér engan líka hér á landi.

Páll Óskar mun syngja öll bestu lög ferils síns frá 1991-2017 ásamt fimm manna hljómsveit í bland við raftónlistina og fullt af dönsurum. Sviðið er sérsmíðað og ekkert til sparað í búningum og umgjörð til að gera þessa tónleika með öllu ógleymanlega.

Sprengjur, LED stangir, LED kastarar, LED boltar, gúmmíbátar og sófar koma við sögu ... já, og áhorfendur fá ljósaarmbönd og verða þar með hluti af sýningunni!
Laugardalshöllin mun enn og aftur springa af hreinni gleði, hlaðin glysi og glaumi eins og Páll Óskar einn getur leyft sér. Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er hægt að halda tónleikana í 3ja skipti; þetta er síðasti séns!
VERÐ

Dagtónleikar: 2.990 kr standandi gólf / 5.990 kr. númeruð sæti
Kvöldtónleikar: 6.990 kr. standandi gólf / 11.990 kr. númeruð sæti

Dagtónleikar: Húsið opnar kl. 15. Tónleikar hefjast kl. 16 og eru um 75 mínútur að lengd. Áttan hitar upp frá kl 15.45 - 16. Ekkert aldurstakmark.

Kvöldtónleikar: Húsið opnar kl. 19. Áttan hittar upp kl. 20 - 20.30. Palli stígur á svið kl 21 og kemur fram í um tvo tíma. 18 ára aldurstakmark.
Рекомендации по теме
welcome to shbcf.ru