filmov
tv
Stöðvið fjöldamorð Ísraelshers! Samstaða með Palestínu!

Показать описание
Samstaða með Palestínu á Austurvelli 15. október
"ÁSKORUN
Í augsýn alls heimsins er framið þjóðarmorð sem verður að stöðva.
Ísland hefur viðurkennt rétt palestínsku þjóðarinnar til að stofna eigið ríki og að palestínskir flóttamenn eigi rétt á að snúa aftur til heimkynna sinna. Það er skylda íslenskra stjórnvalda, sem lýsa yfir mikilvægi og réttmæti mannréttinda og alþjóðalaga, að liðsinna Palestínumönnum í baráttu þeirra fyrir frelsi og mannréttindum í eigin landi.
Með ofurelfi liðs og öflugum hernaðartækjum ræðst her Ísraels til atlögu gegn Palestínumönnum á Gaza. Hús eru jöfnuð við jörðu, sjúkrahús og skólar eyðilagðir og þúsundir manna drepnir. Á hverjum degi ræðst landtökufólk úr ólöglegu landtökubyggðunum á Vesturbakkanum gegn bændum og öðrum íbúum Palestínu, þeir brenna akra, höggva olífutré sem tekur áratugi að rækta, bera eld að húsum og bifreiðum - og drepa jafnt unga sem aldna.
Við skorum á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra að senda ríkisstjórn Ísraels skorinorða kröfu um að stöðva fjöldamorðin á Gaza tafarlaust!
Samþykkt á fundi á Austurvelli 15. október 2023"
------------------------------------------------------------------------------
Samstöðin er samfélagssjónvarp og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.