Trailer - Grímuball NFMH

preview_player
Показать описание
Kæru menntskælingar!

NFMH hefur ákveðið með lensblautu stolti að blása til árlega Grímuballsins og verður það haldið í HÖRPU sjálfri, nánar tiltekið Silfurberg!

Strákarnir sem rústuðu Gettu Betur í fyrra munu vera með DJ-set til að hita lýðinn upp, síðan tekur Húsband MH við og heldur áfram geðveikri stemmingu. Til að toppa allt spilar þjóðargersemin og fyrrverandi MH-hljómsveitin STUÐMENN í lokin og taka sína bestu slagara.

Ertu refsarinn?
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Dagskrá kvöldsins hljómar svo:

Gettu Betur (DJ Set) 22:00-22:30
Húsband MH 22:30-23:30
Stuðmenn 23:30-01:00

Húsið opnar kl 22:00 og lokar 23:30. Munið að skrifa nafn og kennitölu aftan á miðann og hafa skilríki meðferðis á ballið, annars er voðinnn vís.

VERÐ:
3000 KR FYRIR MEÐLIMI NFMH
3500 KR FYRIR AÐRA

Miðasala er eftirfarandi daga:

Föstudagur 10. október (MH ONLY): 10:00-16:00
Mánudagur 13. október (Allir): 10:00-16:00
Þriðjudagur 14. október (Allir): 10:00-16:00
Miðvikudagur 15. október (Allir): 10:00-16:00

Veljið búningana ykkar vel vegna þess að manneskjan í frumlegasta búningnum vinnur stórfengleg verðlaun!

Ölvun ógildir miðann og ef fólk vill blása í áfengismæli fer það í edrúpottinn og gæti unnið veglega vinninga.

Taktu af þér grímuna, komdu nú og kysstu mig.

Sjáumst á ballinu :*
Рекомендации по теме