Valdimar Guðmundsson & Fjölskyldan - Ég þarf enga gjöf í ár

preview_player
Показать описание
Lag: Valdimar Guðmundsson, Ásgeir Aðalsteinsson og Ómar Guðjónsson
Texti: Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson

Þegar dagsbirtan virðist örmagna
Og hún sefur út heilu dagana
Frosnar bílrúður, hálar gangstéttir ,
snjórinn fýkur um, sest í skaflana.

Þá finn ég í því huggun að þurfa ekk’ að fara út
Og finn mér gott teppi, helli upp á kaffi, hlusta á hroturnar í hundinum

Úti sé ég kuldagallabörn
Bíða úti á næstu stoppustöð
Snjótittlinga að kroppa í garðinum
Ferðamenn í þykkum dúnúlpum

Og það er eitthvað alveg sérstakt sem
Sameinar þau öll
Þau bíða eftir jólunum alveg eins og ég

Þegar klukkan loks slær sex
fellur á kyrrð, enginn kvíði, ekkert stress
Frá amstrinu finnum skjól
Hægist á tímanum allt verður hljótt

Ég þarf enga gjöf í ár
Þetta er nóg fyrir mig

Nú er klukkan orðin sex
Ég bið bara um rólegheitin

Í desember
Ég stundum gleymi mér
og gef mér allt
Of lítinn frest

Í skylduverk
Sem bara hrannast upp
Og angra mig

Í bílamergð
Ég ligg á flautunni
En síðan ranka ég við mér

Þrátt fyrir allt
Þá veit ég sama hvað
Það koma jól

Þegar klukkan loks slær sex
fellur á kyrrð, enginn kvíði, ekkert stress

Frá amstrinu finnum skjól
Hægist á tímanum allt verður hljótt

Ég þarf enga gjöf í ár
Þetta er nóg fyrir mig

Nú er klukkan orðin sex
Ég bið bara um rólegheitin
join shbcf.ru