Ástarsæla - undirspil

preview_player
Показать описание
Ástarsæla - pianóleikur Guðrún Árný

Lag: Gunnar Þórðarson Höfundur
texti: Þorsteinn Eggertsson

Leggðu' aftur augun þín skær
ástin mín, dagur er fjær.
Svo vil ég vaka þér hjá;
vernda þig ef að ég má.

Er ég horfi' á þig hitnar mín sál.
Hverful orð get' ei túlkað mitt mál.
Og er sefurðu vært mun ég vak' yfir þér.
Sæll af ást ég er.

Sefur þú nú sætt og rótt,
sveipuð í rökkri og yl.
Hvíldu hjá mér, allt er hljótt.
Himneskt er að vera til.

Sólin er sest. Það er nótt.
Sefur þú nú sætt og rótt.
Fegurð þín færir mér yl.
Gott finnst mér að vera til.

Litlum kossi ég lauslega stel
lítinn þjófnað ég kossinn þann tel
og ef sefur þú sætt mun ég vak´ yfir þér.
Sæll af ást ég er.

Sefur þú nú sætt og rótt,
sveipuð í rökkri og yl.
Hvíldu hjá mér, allt er hljótt.
Himneskt er að vera til.

Aftur er augun þín skær
opnast, þá verð ég þér nær.
Vernda þig áfram ég vil;
veita þér sælu og yl.

Öðrum kossi þá aftur ég stel.
Aðeins þér alla ást mína fel
- og að síðustu ást mína segi ég þér.
Sæll af ást ég er.

Sefur þú nú sætt og rótt,
sveipuð í rökkri og yl.
Hvíldu hjá mér, allt er hljótt.
Himneskt er að vera til.