filmov
tv
Það eru að koma jól - Stefanía Svavarsdóttir

Показать описание
Hugmyndin að textanum er tæplega 40 ára gömul minning. Fyrir jólin á árunum í kringum 1980-1990 stóð Hjálparstofnun kirkjunnar fyrir landssöfun til hjálpar fátæktu fólki í heiminum. Það myndaðist mikil stemning fyrir þessari söfnun í samfélaginu, sem náði líklega hámarki árið 1986 þegar lagið „Hjálpum þeim“ kom út. Það voru margir af okkar þekktustu tónlistarmönnum sem tóku sig saman og gáfu alla vinnu sína við gerð lagsins, en allur ágóði af útgáfunni rann til söfnunarinnar.
Á þessum árum bjó ég ásamt fjöldkyldu minni um tíma í Bólstaðarhlíð í Reykjavík. Einu sinni sem oftar vorum við búin að undirbúa jólahaldið á Þorláksmessu og það vildi svo til eitt árið að við áttum smá afgang eftir að hafa klárað öll jólainnkaup. Við ákváðum að gefa þessa upphæð í söfnunina. Í framhaldi af því tók ég mér göngutúr niður á Hlemm til að koma þessu framlagi okkar í réttar hendur. Það er stundum sagt að lífið markist af minningum og þegar ég lít til baka, þá hefur þessi minning lifað með mér í gegnum árin og varð að lokum kveikjan að textanum „Það eru að koma jól“.
Höfundur lags og texta: Björgvin Þ. Valdimarsson
Aðalsöngvari og bakraddir: Stefanía Svavarsdóttir
Hljóðfæraleikarar eru: Vilhjálmur Guðjónsson (altsaxofónn, bassi, rafgítar, víbrafónn og bjöllur)
Björgvin Þ. Valdimarsson (rafpíanó)
Trommur: Jóhann Hjörleifsson
Stjórn upptöku, hljóðblöndun og útsetning: Vilhjálmur Guðjónsson
Mastering: Addi800
Útgáfudagur 26. nóvember 2021
Það eru´ að koma jól
um jarðarinnar ból,
og eftirvænting fyllir huga minn.
Öll ljósin lifna við
þau stytta okkar bið,
uns jólin koma´ í allri sinni dýrð.
En eru jól hjá þér
Jafn indæl og hjá mér?
Því miður er svo ekki´ í heimi hér.
Því stríð og fátækt víða
menn eiga við að stríða.
Ég óska þess að friður verði´ um jól.
Viðlag:
Ég er þakklátur og glaður
fyrir allt það sem ég á,
því ekkert sjálfsagt er, allt þakka ber.
Það er sælla´ að gefa´ en þiggja
að mörgu er að hyggja
í veröld sem við eigum ég og þú.
Er gekk ég á þinn fund
ég gleymi´ ei þeirri stund.
Er rétti´ ég veikum bróður hjálparhönd.
Ég fann ég gerði rétt
því handtakið var þétt,
hjá þeim sem varð að þiggja þessa hjálp.
Það einskis virði er
að berja sjálfum sér
á brjóst, og þykjast geta gert allt einn.
Það er svo mikils virði
að bera´ ei heimsins byrði,
einn og yfirgefinn, hjálparlaust.
Viðlag:
Ég er þakklátur og glaður,
fyrir allt það sem ég á,
því ekkert sjálfsagt er, allt þakka ber.
Það er sælla´ að gefa´ en þiggja,

Комментарии