filmov
tv
Loftslagsréttlæti - örfræðsla // Hvað er loftslagsréttlæti?

Показать описание
Hvað er loftslagsréttlæti?
Hvernig hafa loftslagsbreytingar áhrif á ólíka samfélagshópa?
Hvernig tengist hinsegin málstaðurinn, kynjajafnrétti, réttindi fatlaðra og fátækt fólk loftslagsmálum?
Hugtakið loftslagsréttlæti gefur til kynna að loftslagsmál eru ekki bara umhverfismál, heldur verður baráttan við loftslagshamfarir alltaf að taka mið af mannréttindum, félagslegu réttlæti og jafnrétti kynja.
Jafnrétti er óhugsandi án þróunar til sjálfbærni og breytts efnahagskerfis. Þess vegna skiptir þekking á loftslagsjafnrétti miklu máli.
Loftslagsbreytingar hafa mismikil áhrif á fólk eftir stöðu þeirra í samfélaginu, þar sem búseta, kyn, kyngervi, kynhneigð, kynþáttur, litarháttur, aldur, efnahagur og aðrir þættir gegna mikilvægu hlutverki.
Umræðan um loftslagsréttlæti er rétt að hefjast í íslensku samfélagi. Nú þegar þú hefur kynnt þér loftslagsréttlæti getur þú tekið meðvitaða ákvörðun um að halda málstaðnum á lofti. Saman getum við stuðlað að aukinni vitund og umræðu um málefnið.
* Verum meðvituð um að réttlæti skiptir miklu máli í loftslagsumræðunni.
* Höfum áhrif og bendum á það þegar okkur þykir jafnréttismál ekki fá nægt vægi í loftslagsumræðunni.
* Leitum réttmætra lausna. Hugum að því hvernig ólíkar lausnir hafa áhrif á ólíka samfélagshópa. Hefur lausnin t.d. meiri áhrif á ríka eða fátæka? Konur eða karla? Fatlaða eða ófatlaða?
Myndbandið er unnið uppúr námsefni frá Vigdísi Fríðu sérfræðingi hjá Landvernd.
Texti: Vigdís Fríða
Klipping og myndbandsgerð: Vigdís Fríða
Sérstakar þakkir: Rannveig Magnúsdóttir
Myndefni: Canva.
Landvernd hefur haft umsjón með Skólum á grænni grein á Íslandi (Eco-schools Iceland) frá upphafi en verkefnið er alþjóðlegt menntaverkefni sem er leiðandi í menntun til sjálfbærni. Eco-schools verkefnið er rekið í 70 löndum víðsvegar um heiminn.